Haukur Brink hefur verið einn besti leikmaður Stjörnunnar á undirbúningstímabilinu. Hann er markahæsti leikmaður liðsins í Lengjubikarnum með fjögur mörk.
Haukur skoraði jafnframt þrjú mörk í tveimur leikjum í æfingaferð Stjörnunnar í síðasta mánuði.
Haukur skoraði jafnframt þrjú mörk í tveimur leikjum í æfingaferð Stjörnunnar í síðasta mánuði.
Hann er tvítugur kantmaður sem skrifaði undir fjögurra ára samning við Stjörnuna fyrir rúmu ári síðan. Hann kom við sögu í ellefu leikjum á síðasta tímabili, spilaði ekki í um tvo mánuði þar sem hann reyndi fyrir sér í háskólaboltanum í Bandaríkjunum en sneri svo til baka í Garðabæinn.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var spurður út í framgöngu Hauks á undirbúningstímabilinu eftir 0-4 tap liðsins gegn KR á laugardaginn var.
„Hann var auðvitað frábær hjá okkur fyrir tveimur árum. Það vantaði aðeins upp á í fyrra. Það var frábært að sjá hvernig hann kom aftur þegar hann sneri heim. Maður sá alveg í hvað stefndi þá, það var þannig gír og orka í honum. Hann er búinn að spila frábærlega og lítur vel út,“ sagði Jökull en viðtalið má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir


