City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 17:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mjög jákvæð tíðindi af Jasoni Daða
Mynd: Grimsby
Jason Daði Svanþórsson var í leikmannahópi Grimsby á laugardag í fyrsta sinn síðan 8. nóvember. Hann missti af 23 leikjum vegna meiðsla.

Jason er 26 ára kantmaður sem keyptur var til Grimsby frá Breiðabliki sumarið 2024 og er á sínu öðru tímabili á Englandi. Hnémeiðsli hafa haldið honum frá vellinum stóran hluta af síðasta árinu.

Grimsby tapaði naumlega gegn Oldham og situr í 8. sæti ensku D-deildarinnar, fjórðu efstu deildar. Grimsby er þremur stigum frá umspilssæti, liðið á leik til góða þegar níu umferðir eru eftir. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Fleetwood annað kvöld.

Jason verður samningslaus í sumar og hefur í vetur verið orðaður við heimkomu til Íslands. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net vill Jason vera áfram erlendis en hann hefur verið orðaður bæði við Breiðablik og KR.
Stöðutaflan England England 2. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bromley 37 20 13 4 60 36 +24 73
2 MK Dons 37 20 11 6 74 37 +37 71
3 Cambridge United 36 19 11 6 55 28 +27 68
4 Notts County 36 19 7 10 56 37 +19 64
5 Salford City 37 20 4 13 51 46 +5 64
6 Swindon Town 37 19 6 12 60 45 +15 63
7 Chesterfield 37 15 14 8 60 49 +11 59
8 Grimsby 36 15 11 10 50 40 +10 56
9 Crewe 37 16 8 13 53 46 +7 56
10 Walsall 37 16 8 13 46 40 +6 56
11 Colchester 36 14 11 11 50 39 +11 53
12 Barnet 37 14 11 12 45 41 +4 53
13 Oldham Athletic 35 13 13 9 40 31 +9 52
14 Fleetwood Town 37 13 12 12 47 45 +2 51
15 Accrington Stanley 36 13 9 14 38 37 +1 48
16 Gillingham 36 11 12 13 43 52 -9 45
17 Cheltenham Town 36 11 8 17 40 59 -19 41
18 Shrewsbury 37 11 8 18 37 58 -21 41
19 Bristol R. 37 11 4 22 37 59 -22 37
20 Tranmere Rovers 37 9 9 19 48 65 -17 36
21 Newport 37 8 7 22 38 64 -26 31
22 Crawley Town 37 6 12 19 35 58 -23 30
23 Barrow 36 7 8 21 35 55 -20 29
24 Harrogate Town 37 6 9 22 26 57 -31 27
Athugasemdir
banner
banner