Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 12:57
Elvar Geir Magnússon
Fjölskylda Dowman öðlast FIFA umboðsmannaréttindi til að sjá um feril hans
Max Dowman.
Max Dowman.
Mynd: EPA
Faðir og bróðir Max Dowman, leikmanns Arsenal, hafa öðlast FIFA umboðsmannaréttindi en fjölskylda þessa spennandi leikmanns ætlar að sjá um að stýra hans ferli og málum.

Fjölmargir umboðsmenn hafa sóst eftir því að vinna fyrir Dowman sem varð á dögunum yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi; 16 ára og 73 daga gamall.

Þegar hann verður 17 ára þann 31. desember virkjast hans fyrsti atvinnumannasamningur. Lögfræðistofan Onside Law sá um viðræðurnar um þann samning fyrir hönd Dowman.

Það eru hinsvegar engar áætlanir um að semja við stóra umboðsskrifsstofu heldur ætlar fjölskylda hans að stýra málum.

Faðir hans, Rob Dowman, hefur þjálfað í yngri flokkum og þá er hann stofnandi og forstjóri tryggingafélagsins Pantheon Speciality. Eldri sonur hans, Ethan, starfar sem verðbréfamiðlari með hagfræðigráðu frá Háskólanum í Nottingham.
Athugasemdir
banner