Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 13:09
Kári Snorrason
Enn lekur úr herbúðum Chelsea
Liam Rosenior ætlaði að komast til botns í málinu fyrir viðureign kvöldsins.
Liam Rosenior ætlaði að komast til botns í málinu fyrir viðureign kvöldsins.
Mynd: EPA
Alejandro Garnacho var bendlaður við lekamál á sínum tíma hjá United.
Alejandro Garnacho var bendlaður við lekamál á sínum tíma hjá United.
Mynd: EPA
Chelsea tókst ekki að stöðva leka úr herbúðum félagsins, en franski miðillinn Onze Mondial birti frétt í morgun um uppstillingu liðsins fyrir leik gegn PSG í kvöld.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem byrjunarlið Chelsea lekur í fjölmiðla, en það gerðist jafnframt fyrir fyrri viðureign liðanna. Liam Rosenior, stjóri Chelsea, var viss um að félagið kæmi til botns í lekamálinu fyrir leik kvöldsins.

Samkvæmt frétt Onze Mondial verður Wesley Fofana á bekknum en hinn tvítugi Jorrel Hato á að byrja í miðverði við hlið Trevoh Chalobah. Þá er Malo Gusto tæpur vegna veikinda.

Mögulegt byrjunarlið Chelsea gegn PSG samkvæmt fréttinni er í 4-2-3-1 leikkerfi: Sanchez í marki; Gusto, Chalobah, Hato og Cucurella í vörn; Lavia og Caicedo á miðju; Palmer, Fernandez og Neto fyrir aftan Pedro frammi. PSG leiðir einvígið 5-2.

Á síðasta ári komu upp álíka ásakanir hjá Manchester United þar sem núverandi leikmaður Chelsea, Alejandro Garnacho var bendlaður við að hafa lekið byrjunarliðinu. Forráðamenn United höfnuðu þó ásökununum.
Athugasemdir
banner
banner