Kvennadeildin í Bandaríkjunum hófst á dögunum en Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur í Angel City unnu Chicago Stars í fyrsta leiknum.
Sveindís Jane lagði upp fjórða og síðasta markið í 4-0 sigri með glæsibrag.
Hún fékk langa sendingu fram og var ákveðin, nýtti hraðan sinn og komst í góða fyrirgjafastöðu. Hún sendi boltann út í teiginn og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Maiara Niehues.
„Það er veisla í LA," sagði lýsandinn á leiknum.
„Fyrirgefðu, Sveindís á þetta skuldlaust. Hún fær nægan tíma, lítur upp, sendir boltann út í teiginn og bæng auðvelt mark. Þessar snertingar hjá Sveindísi voru fyrsta flokks."
Athugasemdir


