Það ríkir smá óvissa um framhaldið í Lengjubikar kvenna þar sem undanúrslitin eru framundan.
Í riðli 2 áttu Víkingur og ÍBV leik inni eftir að fresta þurfti þeirra leik í lok febrúar. Fyrir þann leik var ljóst að Víkingur þurfti annað hvort að vinna með ellefu mörkum, og komast þar með upp fyrir Breiðablik, eða ÍBV að vinna með fjórum mörkum svo Valur færi upp fyrir Víking í annað sætið.
Liðin, Víkingur og ÍBV, eru í æfingaferð og mættust á Tenerife í gær. Sá leikur endaði með 3-1 sigri Víkings. Kannað var hvort sá leikur mætti vera hluti af Lengjubikarnum en UEFA gaf ekki grænt ljós á það. Dagný Rún Pétursdóttir, Bergþóra Sól Ásmundsdóttir og Bergdís Sveinsdóttir skoruðu mörk Víkings í leiknum. Ekki hafa fengist upplýsingar um markaskorara ÍBV.
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, segir í svari við fyrirspurn Fótbolta.net að þessi möguleiki hafi verið ræddur en ekki hefði legið fyrir með nægum fyrirvara hvernig yrði staðið að leiknum. Passa þurfi upp á að umgjörð og framkvæmd leiks og UEFA hafi lagst gegn þessari hugmynd.
Þróttur vinnur riðil eitt og Stjarnan endar í öðru sæti riðilsins. Breiðablik vinnur riðil tvö og Víkingur endar í öðru sæti. Þróttur og Breiðablik fá því heimaleiki í undanúrslitunum og er ljóst að Breiðablik og Stjarnan munu mætast á föstudag.
*Það er svo áætlað að Þróttur taki á móti Víkingi á mánudag. Sá leikur getur tæplega farið fram fyrr þar sem Víkingur kemur ekki heim úr æfingaferð fyrr en á laugardagskvöld.
Það að spila á mánudag á AVIS vellinum gæti orðið höfuðverkur því þá er hafið U21 landsliðsverkefni á svæðinu, íslenska liðið og það eistneska æfa á vellinum í aðdraganda leiks liðanna í undankeppni EM. U21 landsleikurinn fer fram á AVIS vellinum næsta fimmtudag.
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna var settur á 25. mars en er nú settur á laugardaginn 28. mars.

Drög að framhaldinu
Undanúrslitin
Fös 20. mars 18:00 Breiðablik - Stjarnan (Kópavogsvöllur)
*Mán 23. mars 19:00 Þróttur - Víkingur R. (AVIS völlurinn)
Úrslitaleikur
Lau 28. mars
Athugasemdir