Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Stjörnuna.
Ingibjörg er uppalin hjá Sindra en hún gekk til liðs við Stjörnuna árið 2020 frá ÍBV og hefur verið í lykilhlutverki í Garðabænum.
Ingibjörg er uppalin hjá Sindra en hún gekk til liðs við Stjörnuna árið 2020 frá ÍBV og hefur verið í lykilhlutverki í Garðabænum.
„Ingibjörg hefur verið lykilleikmaður í liðinu og með þessum samningi er tryggt að hún verði áfram hluti af þeirri uppbyggingu sem framundan er næstu árin," segir í tilkynningu félagsins.
„Það er mikið ánægjuefni að Ingibjörg hafi skrifað undir nýjan 3 ára samning við félagið. Frá fyrsta degi hefur hún sýnt mikla leiðtogahæfni og fagmennsku í allri sinni nálgun, og mun vera mikilvæg í þeirri uppbyggingu liðsins sem stefnan er sett á á næstkomandi árum.“ segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, við undirskriftina.
Athugasemdir



