Stjarnan 2 - 2 Vestri
0-1 Abdourahmane Diagne ('20 )
0-2 Imran Mehanovic ('23 )
1-2 Aron Freyr Heimisson ('37 )
2-2 Aron Freyr Heimisson ('86 )
0-1 Abdourahmane Diagne ('20 )
0-2 Imran Mehanovic ('23 )
1-2 Aron Freyr Heimisson ('37 )
2-2 Aron Freyr Heimisson ('86 )
Stjarnan tapaði gegn KR í undanúrslitum Lengjubikarsins á dögunum en liðið kláraði riðlakeppnina ekki fyrr en í kvöld.
Liðið mætti Vestra í riðli eitt en liðin áttu að mætast fyrir rúmri viku en leiknum var frestað vegna vallarskilyrða.
Stjarnan stillti upp unglingaliði en liðið mætir FH í úrslitum Þungavigtarbikarsins á Samsungvellinum á morgun. Meðalaldur byrjunarliðs Stjörnunnar var rúmlega 17 ár og hjá Vestra rúmlega 20 ár.
Vestri náði forystunni eftir tuttugu mínútna leik og Imran Mehanovic bætti öðru markinu við stuttu síðar.
Aron Freyr Heimisson, sem er fæddur árið 2009, gerði sér lítið fyrir og skoraði tvennu fyrir Stjörnuna og bjargaði stigi fyrir liðið.
Stjarnan endar með 13 stig á toppnum en Vestri í 5. sæti með 4 stig.
Athugasemdir


