Á miðvikudag mun Arnar Gunnlaugsson opinbera landsliðshópinn fyrir vináttuleiki gegn Kanada og Haítí. Fótbolti.net setti saman mögulegan landsliðshóp fyrir verkefnið og var nafn Gísla Gottskálks Þórðarsonar í mögulegum hópi. Arnar þekkir Gísla vel, þjálfaði hann hjá Víkingi áður en Gísli tók skrefið út í atvinnumennsku.
Krisjtán Óli Sigurðsson, einn af meðlimum Þungavigtarinnar, segir frá því á X að Gísli Gotti verði með ekki í A-landsliðinu, heldur verði í U21 hópnum. U21 landsliðið á leiki gegn Frakklandi og Eistlandi í undankeppni EM.
Krisjtán Óli Sigurðsson, einn af meðlimum Þungavigtarinnar, segir frá því á X að Gísli Gotti verði með ekki í A-landsliðinu, heldur verði í U21 hópnum. U21 landsliðið á leiki gegn Frakklandi og Eistlandi í undankeppni EM.
Gísli er leikmaður Lech Poznan í Póllandi sem var í öllum hópum Arnars í undankeppni HM og kom við sögu í tveimur leikjum. Hann er fæddur árið 2004 og er því gjaldgengur í U21 hópinn. Hann á að baki fjóra leiki með U21.
U21 landsliðið mætir fyrst Eistlandi 26. mars á Þróttarvelli og heimsækir svo Frakka á Stade Abbé-Deschamps.
Í franska U21 landsliðinu hafa verið þekktir leikmenn í Evrópuboltanum það sem af er undankeppninnar. Leikmenn eins og Leny Yoro (Man Utd), Ayyoub Bouaddi (Lille), Junior Kroupi (Bournemouth), Mathys Tel (Tottenham), Senny Mayulu (PSG), Jean-Mattéo Bahoya (Frankfurt), Lesley Ugochukwu (Burnley), Jaydee Canvot (Crystal Palace) og Wilson Odobert (Tottenham) hafa verið í hópnum.
Gísli skoraði fyrir Lech fyrir rúmri viku síðan en hann er ekki fastamaður í byrjunarliði pólska stórliðsins. U21 landsliðið er í 4. sæti undankeppninnar og á möguleika á því að komast á EM.
Gísli Gotti verður í u21 landsliðinu í komandi glugga.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) March 16, 2026
Skjalfest.#HeimavinnaHöfðingjans
Stöðutaflan
Ísland
Landslið karla
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Athugasemdir



