Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 15:30
Elvar Geir Magnússon
Fyrirliðinn með á morgun
Cristian Romero.
Cristian Romero.
Mynd: EPA
Fyrirliðinn Cristian Romero verður með Tottenham í seinni leiknum gegn Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hann missti af 1-1 jafnteflinu gegn Liverpool eftir að hafa fengið höfuðhögg í fyrri leiknum gegn Atletico.

Atletico Madrid vann 5-2 sigur á Spáni og ljóst að Tottenham þarf á kraftaverki að halda í Lundúnum á morgun.

„Þetta er erfitt en ekki ómögulegt. Við þurfum að halda okkur inni í leiknum og einbeita okkur að styrleikum okkar. Að trúa því að við getum snúið þessu við er mikilvægt," sagði bráðabirgðastjórinn Igor Tudor á fréttamannafundi.

Joao Palhinha verður ekki með í leiknum á morgun en Destiny Udogie og Lucas Bergvall eru tilbúnir að vera til taks á bekknum. Conor Gallagher er að glíma við veikindi og óvíst hvort hann verði í hóp.
Athugasemdir
banner
banner