Luis Enrique, þjálfari Evrópumeistara Paris Saint-Germain, segist ekki vera að spá í framtíðina og er stoltur að þjálfa franska stórliðið, en hann var spurður út í áhuga enskra liða á blaðamannafundi í gær.
Enrique vann þrennuna með PSG á síðasta tímabili og horfa mörg stórlið til hans.
Hann hefur verið orðaður við ensku úrvalsdeildina síðustu mánuði, en það er ólíklegt að hann muni stökkva frá borði í sumar.
Í raun hafði hann engan áhuga á að ræða áhuga annarra liða á blaðamannafundinum.
„Ég skil ekkert hvað þú ert að segja og er í raun alveg sama. Þetta er ekki mikilvægt.“
„Ég er þjálfari PSG og er mjög ánægður að stýra þessu frábæra félagi,“ sagði Enrique.
Athugasemdir



