Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 12:33
Elvar Geir Magnússon
Upplifði reiði stuðningsmanna út í Jökul - „Það var ekki lítið sem gekk á“
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Valtýr Björn á vellinum.
Valtýr Björn á vellinum.
Mynd: Raggi Óla
KR fór illa með Stjörnuna.
KR fór illa með Stjörnuna.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stjarnan steinlá gegn KR í undanúrslitum Lengjubikarsins á laugardaginn. Fjölmiðlamaðurinn reyndi Valtýr Björn Valtýsson mætti á leikinn í Garðabænum og segir frá upplifun sinni í hlaðvarpsþætti sínum, Mín skoðun.

Talað hefur verið um að stuðningsmenn Stjörnunnar skiptist í tvo hópa þegar kemur að þjálfaranum Jökli Elísabetarsyni og Valtýr segir að pirringurinn meðal áhorfenda hafi verið áberandi.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  4 KR

„Ég stóð Stjörnumegin í stúkunni, og lætin sem voru þar í garð Jökuls og þeirra Stjörnumanna... það var ekki lítið sem gekk á. Sumir fóru í stöðunni 3-0 og hinir sem eftir voru fóru í stöðunni 4-0," segir Valtýr.

Ákveðinn kjarni með litla þolinmæði
Fótboltaþjálfarinn og sparkspekingurinn Haraldur Árni Hróðmarsson ræddi við Valtý.

„Maður varð var við þetta í fyrra, ákveðinn kjarni þarna er með litla þolinmæði gagnvart þjálfaranum. Ég skil vel að fólk í stúkunni hafi orðið brjálað, þetta eru undanúrslit og þetta er KR. Ég held að pressan sé mjög mikil á Jökli og Stjörnuliðinu, þannig er það þegar þú ert með gott lið," segir Haraldur.

Voru alveg brjálaðir út í hlutverk Birnis
Haraldur hrósar KR fyrir frábæra spilamennsku, sigurinn hafi verið síst of stór. Hann segir að það megi ekki fella of stóra dóma á Stjörnuliðið út frá þessum eina leik.

„Garðabærinn er þannig að ef meirihlutinn í liðinu er ekki úr Garðabæ þá þarftu að verða Íslandsmeistari eða í titilbaráttu, annars er ekki ánægja með þig," segir hann.

Valtýr talar um að mikil óánægja hafi verið meðal stuðningsmanna að Birnir Snær Ingason, sem kom frá KA, hafi verið notaður á miðsvæðinu en ekki á kantinum.

„Þeir voru alveg brjálaðir út í þetta. Setningin sem flaug þarna um: 'Hvað erum við að fá 100 milljóna króna leikmann og notum hann ekki í réttri stöðu einu sinni?'" segir Valtýr og segir að óánægja hafi verið með fleira í uppstillingu Jökuls.

Jökull komi inn í mótið á þunnum ís
Jóhann Már Helgason, sérfræðingur í Dr. Football segir að Jökull komi í heitu sæti inn í mótið.

„Menn í Garðabænum eru bara í nettu áfalli. Menn eru spenntir fyrir þessu liði og það er búið að leggja mikið í þetta. Svo kemur þetta. Þeir voru mjög takmarkaðir í fyrra. Þeir slysuðust inn í toppbaráttuna. Ef það verður áframhald af þessu... maður hefur heyrt að Jökull sé á þunnum ís komandi inn í mótið," segir Jóhann.

Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Jökull talaði sjálfur um það eftir skellinn gegn KR að þetta hafi verið óásættanleg frammistaða.

„Þetta var dapurt hjá okkur í dag, þetta var svona flatt og soft, eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við. Ég held að þetta sé verðskuldaður fjögurra marka munur á milli liðanna," sagði Jökull eftir tapið.

Hvernig metur hann liðið þegar það styttist í mót?

„Ég er bara mjög ánægður á hvaða stað liðið er heilt yfir, við erum búnir að vinna alla leikina fyrir utan þennan og það er bara gott að sjá hvað gerist og hvernig það lítur út þegar við mætum ekki klárir. Ég er rólegur með liðið en við getum ekki mætt aftur svona í leik."
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Athugasemdir
banner