Arsenal fylgist vel með stöðu mála hjá Tino Livramento hægri bakverði Newcastle upp á möguleg kaup í sumarglugganum. Það er The Times sem greinir frá.
Arsenal er með níu stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar og á möguleika á því að vinna fjóra titla á þessu tímabili, en þegar er undirbúningstíma hafin fyrir sumarið.
Arsenal er með níu stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar og á möguleika á því að vinna fjóra titla á þessu tímabili, en þegar er undirbúningstíma hafin fyrir sumarið.
Arsenal er með mikla breidd í varnarlínunni en er samt sagt vera skoða möguleikann á því að styrkja sig enn frekar.
Livramento, sem er 23 ára og uppalinn hjá Chelsea, hefur verið á lista hjá Manchester City í langan tíma, er sagður vera eitt af skotmörkum Arsenal í sumar.
Livramento er ekki eini leikmaður Newcastle sem hefur verið orðaður við Arsenal. Þeir Sandro Tonali, Bruno Guimaraes og Lewis Hall hafa einnig verið orðaðir við Arsenal á síðustu misserum.
Athugasemdir



