UEFA gaf Pedro Neto, leikmanni Chelsea, aðvörun fyrir að hafa hrint boltastrák í 5-2 tapinu gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í síðustu viku.
Aganefnd UEFA skoðaði atvikið og hefði Neto mögulega getað fengið leikbann en slapp við það.
Neto vildi flýta sér að koma boltanum aftur í leik. Boltastrákurinn gerði Neto erfitt fyrir svo portúgalski kantmaðurinn brást við með að ýta honum frá sér og hrifsa boltann af honum.
„Ég vil biðjast afsökunar á þessu atviki. Ég vil biðja boltastrákinn afsökunar, ég er búinn að tala við hann persónulega," sagði Neto eftir lokaflautið.

Liam Rosenior, stjóri Chelsea, sagði á fréttamannafundi í dag:
„Hann baðst afsökunar á atvikinu og að mínu mati tók UEFA rétta ákvörðun," sagði Rosenior en Neto verður því með Chelsea á morgun á Stamford Bridge, þegar liðið leikur seinni leik sinn gegn PSG.
Athugasemdir