Njósnarar Barcelona hafa fylgst grannt með Andreas Schjelderup, norskum sóknarmanni portúgalska liðsins Benfica.
Þetta eru ekki óvæntar fréttir en hann hefur verið á blaði hjá Deco, íþróttastjóra Barcelona, í meira en eitt ár.
Þetta eru ekki óvæntar fréttir en hann hefur verið á blaði hjá Deco, íþróttastjóra Barcelona, í meira en eitt ár.
Njósnarar Börsunga sáu hann í sigri Benfica gegn Arouca um helgina. Félög á Ítalíu og Englandi fylgjast einnig með þessum 21 árs leikmanni.
Verðmiði Benfica gæti flækt málin fyrir Barcelona en Benfica hefur sagt það skýrt að leikmaðurinn verði ekki seldur ódýrt.
Schjelderup hefur að mestu spilað á vinstri vængnum hjá Benfica en hann er með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar í tuttugu deildarleikjum á tímabilinu.
Robert Lewandowski mun að öllum líkindum yfirgefa Barcelona þegar samningur hans rennur út í sumar og þá er óvíst hvort Barcelona nýti sér ákvæði um að kaupa Marcus Rashford.
Athugasemdir



