Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Trent hefur ekki heyrt í Tuchel - „Vonandi fæ ég kallið"
Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold hefur verið á fínu skriði með Real Madrid að undanförnu en hann hefur verið ansi óheppinn með meiðsli á sínu fyrsta tímabili með spænska liðinu.

Hann gekk til liðs við Real Madrid frá Liverpool síðasta sumar en hann hefur komið við sögu í 25 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Hann var í byrjunarliðinu þegar Real Madrid vann Man City 2-1 í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og samanlagt 5-1. Enska landsliðið mætir Úrúgvæ og Japan í æfingaleikjum í þessum mánuði og Trent vonast til að vera í hópnum sem verður opinberaður á föstudaginn.

„Ég hef ekki talað við Tuchel en ég veit að hópurinn verður opinberaður í vikunni svo vonandi fæ ég kallið og get spilað fyrir þjóðina sem er alltaf mesti heiðurinn," sagði Trent.
Athugasemdir
banner