Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 10:40
Elvar Geir Magnússon
Lið vikunnar í enska - 16 ára og gæti hafa innsiglað titilinn
Mynd: EPA
Forysta Arsenal jókst í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og er nú níu stig.

Hinn 16 ára gamli Max Dowman kom af bekknum hjá Arsenal og átti stóran þátt í að landa 2-0 sigri. Hann skoraði annað markið og varð þá yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi.

Seinna á laugardaginn gerði Manchester City 1-1 jafntefli við West Ham í London.

Þetta var góð umferð fyrir Manchester United sem sigraði Aston Villa 3-1 en keppinautar um Meistaradeildarsæti misstigu sig. Liverpool gerði jafntefli gegn Tottenham og Chelsea tapaði gegn Newcastle.

Troy Deeney, sérfræðingur BBC, sér um að velja lið umferðarinnar.
Athugasemdir
banner