City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 17. mars 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Féllu úr leik í undanúrslitum en spila aftur í riðlakeppninni
Stjarnan tapaði í undanúrslitum gegn KR, en átti eftir að spila einn leik í riðlakeppninni sem var frestað vegna vallarskilyrða
Stjarnan tapaði í undanúrslitum gegn KR, en átti eftir að spila einn leik í riðlakeppninni sem var frestað vegna vallarskilyrða
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Tveir leikir eru á dagskrá í A-deild í Lengjubikar karla í kvöld.

Þór og Fylkir mætast í undanúrslitum A-deildar klukkan 18:00 á Greifavellinum.

Sigurvegarinn mun mæta KR í úrslitum sem vann Stjörnuna 4-0 á dögunum.

Stjarnan sem vann A-riðil átti enn eftir að spila einn leik í riðlakeppninni áður en liðið lék undanúrslitaleikinn og verður sá leikur spilaður í kvöld þegar það mætir Vestra klukkan 18:00 á Samsung-vellinum.

Liðin áttu að mætast fyrir rúmri viku en leiknum var frestað vegna vallarskilyrða.

Leikir dagsins:

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
18:00 Stjarnan-Vestri (Samsungvöllurinn)

Lengjubikar karla - A-deild úrslit
18:00 Þór-Fylkir (Greifavöllurinn)
Stöðutaflan Ísland Lengjubikar karla
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner
banner