City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 10:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Fer yfir aðdragandann að komu Danijels - „Þú ert allt öðruvísi en ég hélt“
„Það er skemmtileg ára yfir honum og hann hefur áður staðið sig vel á Íslandi.“
„Það er skemmtileg ára yfir honum og hann hefur áður staðið sig vel á Íslandi.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Jónasson.
Hallgrímur Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birnir Snær Ingason gekk til liðs við KA á láni seinni hluta síðasta tímabils.
Birnir Snær Ingason gekk til liðs við KA á láni seinni hluta síðasta tímabils.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danijel Dejan Djuric gekk til liðs við KA rétt fyrir helgi frá króatíska félaginu NK Istra. Bæði KA og Breiðablik áttu í harðri baráttu um leikmanninn en að lokum skrifaði hann undir þriggja ára samning við Norðanmenn.

Danijel flýgur norður í dag og mun taka þátt á sinni fyrstu æfingu með liðinu síðdegis.

Rætt var við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðastliðinn laugardag og ræddi hann komu Danijels, aðdragandann og líkindi hans og Birnis Snæs Ingasonar.

Átti í fyrstu að vera á láni
„Ég heyrði frá stjórninni að það gæti verið möguleiki á honum og ég ræddi við hann þrisvar í síma. Ég fór yfir með honum hvernig ég sæi hlutina fyrir mér. Það er ekkert launungamál að í fyrstu var hann hugsaður sem lánsmaður en það breyttist á leiðinni. Ég vissi að það væru önnur lið sem voru að spá í honum, eðlilega.

Hann er mjög flottur leikmaður á flottum aldri. Leikmaður sem getur búið til, lagt upp, skorað og unnið stöðuna einn og einn. Það er skemmtileg ára yfir honum og hann hefur áður staðið sig vel á Íslandi. Þannig ég vissi að það yrði samkeppni. Ég er gríðarlega ánægður að við skyldum hafa náð að fá hann og að fá hann á þriggja ára samning er auðvitað bara æðislegt.“


„Þú ert alt öðruvísi en ég hélt“
„Ég hringdi í hann og spjallaði aðeins við hann. Ég rumsaði úr mér í tíu mínútur hvernig ég sæi hlutina. Loksins þegar ég leyfði honum að tala í eina sekúndu og þá var hann: Já, þú ert allt öðruvísi en ég hélt. Þá var hann búinn að mæta okkur með Víkingum og við með þrjá hafsenta og mögulega ekki alltaf með boltann.

Hann var kannski ekki alveg með rétta mynd af því hvernig KA spilar alltaf. Þetta voru góð samtöl. Við fórum yfir stöðuna, hvað ég sæi með hann, fórum yfir hvað við værum að gera vel og þyrftum að gera betur. Ég var ánægður með það sem hann tjáði sig um og hann var ánægður með það sem ég vildi gera. Það er frábært að stjórnin hafi náð að klára þetta.“


Svipar til Birnis
Birnir Snær Ingason kom til KA á láni seinni hluta síðasta tímabils frá sænska liðinu Halmstad. Haddi var spurður um sambærileika Danijels og Birnis.

„Það er einmitt það sem ég ræddi við Danijel. Birnir kom meira að segja um mitt mót og það er ekki auðvelt að koma að utan til Íslands ekki búinn að spila mikið og kannski ekki búið að ganga eins og skyldi úti. Það eru mörg hættumerki að koma beint heim og almenningur heldur að þú eigir að vera bestur frá fyrsta degi. En Danijel er að koma fyrr til okkar og nær leikjum á undirbúningstímabilinu ólíkt Birni.“

Hægt er að hlusta á útvarpsþáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Viðtalið við Hallgrím Jónasson hefst eftir um þrjátíu mínútur.
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
Athugasemdir
banner
banner