Micky van de Ven, varnarmaður Tottenham, segir það af og frá að leikmenn liðsins séu ekki með hugann við verkefnið. Tottenham er einu stigi frá fallsæti.
Van de Ven er pirraður yfir fréttaflutningi götublaða. Eitt þeirra sagði til dæmis umræðu innan klefans á þá leið að leikmaður hafi sagt að honum væri alveg sama þó liðið myndi falla því hann ætli að hvort sem er að fara annað í sumar.

„Hvernig hljómar þetta? Þetta er algjör skáldskapur. Stuðningsmenn trúa þessu. Þetta er bara pirrandi fyrir okkur og skapar vandræði. Stuðningsmenn eru fanrir að trúa þessu bulli," segir Van de Ven.
„Trúið mér þegar ég segi að allir leikmenn og starfsmenn eru með hugann algjörlega við stöðuna sem við erum í núna og við viljum snúa dæminu við. Það er pirrandi þegar fjölmiðlar halda því fram að okkur sé sama. Þetta hefur verið erfitt tímabil og ekki staða sem við viljum vera í."
„Augljóslega hafa síðustu leikir hjá mér persónulega ekki verið góðir og ég veit það sjálfur. Ég er ákveðinn í að sýna öllum að ég legg mig alltaf 100% fram fyrir félagið og mun alltaf gera það á meðan ég spila."
Næsti leikurr Tottenham er gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni annað kvöld. Atletico vann fyrri leikinn 5-2 og Tottenham þarf á kraftaverki að halda í Lundúnum.
Athugasemdir