Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 21:09
Brynjar Ingi Erluson
HM félagsliða: Engin draumabyrjun hjá Trent
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Real Madrid 1 - 1 Al Hilal
1-0 Gonzalo Garcia ('34 )
1-1 Ruben Neves ('41 , víti)

Real Madrid og Al Hilal skildu jöfn, 1-1, í 1. umferð í riðlakeppni HM félagsliða á Hard Rock leikvanginum í Miami í Bandaríkjunum í kvöld.

Margir áhugamenn um fótbolta biðu spenntir eftir því að sjá Trent Alexander-Arnold þreyta frumraun sína með Madrídingum, en það var engin draumabyrjun hjá Englendingnum.

Hann var sérstaklega slakur í fyrri hálfleiknum og náði ekki að ráða nægilega vel við Renan Lodi og Salem Al Dawsari á vinstri vængnum.

Lodi setti boltann í netið eftir tuttugu mínútur eftir skelfileg mistök Trent sem tapaði boltanum og var seinn að skila sér til baka, en hann slapp með skrekkinn því Lodi var rétt fyrir innan er hann fékk sendinguna og markið dæmt af.

Real Madrid skoraði fyrsta mark leiksins fjórtán mínútum síðar eftir frábæra skyndisókn, Vinicius Junior spilaði stóra rulli í sókninni áður en boltanum var komið á Rodrygo sem lagði hann fyrir hinn 21 árs gamla Gonzalo Garcia sem gerði fyrsta markið í þjálfaratíð Xabi Alonso.

Undir lok hálfleiksins fengu Madrídingar á sig vítaspyrnu er Raul Asencio braut á Marcos Leonardo í teignum og skoraði portúgalski miðjumaðurinn Ruben Neves úr vítaspyrnunni.

Al Dawsari var hársbreidd frá því að koma Al Hilal í forystu er hann fékk sendingu frá Sergej-Milinkovic Savic á lokasekúndum fyrri hálfleiks, en boltinn rétt framhjá.

Góð frammistaða hjá Al Hilal í fyrri hálfleiknum, en liðið byrjaði á afturfótunum í þeim síðari.



Arda Güler var nálægt því að koma Madrídingum yfir eftir nokkrar sekúndur er hann mætti fyrirgjöf Vinicius Junior og stýrði henni í þverslá áður en Bono varði frákastið.

Trent fór af velli eftir rúman klukkutíma. Engin sérstök frumraun og aftur var varnarleikurinn að stríða honum. Alonso vonast væntanlega til að styrkja þann þátt í leik Englendingsins.

Real Madrid var allan síðari hálfleikinn í leit að sigurmarki og fengu gullið tækifæri til að taka öll stigin undir lok leiks er brotið var á Fran Garcia í vítateignum.

Federico Valverde gat sótt sigurinn í fyrsta leik Xabi Alonso, en Bono las vítaspyrnu hans og varði nokkuð örugglega. Frábær leikur hjá Bono, sem var áður á mála hjá Sevilla á Spáni.

Lokatölur 1-1 í Miami og sættust liðin á að deila stigunum að þessu sinni.

Madrídingar mæta næst Pachuca 22. júní á meðan Al Hilal spilar við Salzburg.
Athugasemdir
banner