Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 14:58
Kári Snorrason
Duracell: Van Dijk eini útileikmaðurinn sem hefur spilað allar mínútur
Duracell
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: EPA
Virgil van Dijk er eini útileikmaðurinn sem hefur spilað allar mínútur í ensku deildinni á tímabilinu, alls gerir það 3330 mínútur.

Van Dijk getur bætt við öðrum 90 mínútum á sunnudaginn er Liverpool mætir Brentford í lokaumferðinni. Fimm markverðir hafa spilað allar mínútur í deildinni hingað til.

Næsti útileikmaður á eftir Virgil van Dijk er James Garner, með 3324 mínútur. Garner hefur einu sinni verið skipt út af en það var á 84. mínútu gegn Chelsea í desember.

Van Dijk er því vel að því kominn að fá verðlaun sem Duracell kanína vikunnar hér á Fótbolti.net.

Tíu með hæsta mínútufjöldann:
Virgil van Dijk (Liverpool), 3330 mínútur
Bernd Leno (Fulham), 3330 mínútur
Bart Verbruggen (Brighton and Hove Albion), 3330 mínútur
Djordje Petrovic (Bournemouth), 3330 mínútur
David Raya (Arsenal), 3330 mínútur
Jordan Pickford (Everton), 3330 mínútur
James Garner (Everton), 3324 mínútur
Jarrod Bowen (West Ham United), 3315 mínútur
Adrien Truffert (Bournemouth), 3290 mínútur
Morgan Rogers (Aston Villa), 3285 mínútur

Slapp
banner
banner