Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 21:55
Victor Pálsson
2. deild kvenna: Fram grátlega nálægt fyrsta sigrinum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 2 - 2 Fram
0-1 Arna Sól Sævarsdóttir ('53)
0-2 Halla Þórdís Svansdóttir('68)
1-2 Guðrún Ósk Tryggvadóttir('70)
2-2 Halldóra Gísladóttir('90)

Það fór fram einn leikur í 2.deild kvenna í kvöld er ÍR fékk Fram í heimsókn í níunda leik beggja liða á þessari leiktíð.

Fram var fyrir leikinn á botninum með aðeins tvö stig en það hefur ekkert gengið hjá liðinu í sumar.

Fram fékk þó sitt þriðja stig á útivelli í kvöld en leiknum lauk með 2-2 jafntefi þar sem flautumark var í boði.

Halldóra Gísladóttir sá uum að tryggja ÍR stig í uppbótartíma en Fram komst óvænt í 2-0 með mörkum frá Örnu Sól Sævarsdóttur og Höllu Þórdísi Svansdóttur.

Guðrún Ósk Tryggvadóttir lagaði stöðuna fyrir ÍR á 70. mínútu áður en Halldóra tryggði heimaliðinu eitt stig.

Fram er enn á botninum með þrjú stig en ÍR situr í fimmta sætinu með tíu.
Athugasemdir
banner
banner