Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 20:11
Victor Pálsson
3. deild: Augnablik fyrst til að vinna Reyni S.
Hrannar skoraði tvö fyrir Augnablik.
Hrannar skoraði tvö fyrir Augnablik.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Reynir Sandgerði tapaði í kvöld sínum fyrsta leik í 3. deild karla í sumar er liðið mætti Augnablik á Kópavogsvelli.

Reynismenn hafa verið óstöðvandi í sumar og voru fyrir leikinn með 26 stig á toppnum, án taps eftir 10 leiki.

Augnablik gerði sér þó lítið fyrir og vann 3 - 1 heimasigur og lyfti sér upp í þriðja sæti deildarinnar.

Á sama tíma áttust við Ægir og KFG en þeim leik lauk með 1 - 1 jafntefli í Þorlákshöfn.

Bæði lið eru með 14 stig eftir 10 umferðir og sitja í fimmta og sjötta sæti.

Augnablik 3 - 1 Reynir S.
1-0 Hrannar Bogi Jónsson
1-1 Hörður Sveinsson
2-1 Brynjar Óli Bjarnason
3-1 Hrannar Bogi Jónsson

Ægir 1 - 1 KFG
1-0 Miroslav Babic ('22, víti)
1-1 Birgir Ólafur Helgason('70)
Athugasemdir
banner
banner
banner