Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 22:39
Victor Pálsson
4. deild: Afríka vann óvænt - Töpuðu 17-0 fyrr í sumar
Úr leik hjá Afríku árið 2016.
Úr leik hjá Afríku árið 2016.
Mynd: Guðmundur Karl Sigurdórsson
Það voru heldur betur óvænt úrslit í boði í 4. deild karla í kvöld þegar Afríka og Uppsveitir áttust við í A-riðli.

Afríka vann aðeins einn leik á síðasta keppnistímabili og tapaði fyrr í sumar 17-0 gegn Ými. Liðinu tókst þó að vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld með 3-2 sigri í Egilshöll sem kemur heldur betur á óvart.

Uppsveitir voru með sex stig í 7. sæti riðilsins fyrir leikinn en Afríka var að næla í sín fyrstu stig í sumar. Liðið er enn á botninum með þrjú stig.

Í Grindavík vann GG góðan heimasigur á Létti. GG hafði betur með fimm mörkum gegn einu og situr enn í fimmta sæti A-riðils með 16 stig. Léttir er í fjórða sæti með 18 stig.

ÍH lyfti sér þá upp í annað sæti riðilsins eftir leik við Vatnaliljur. Þeim leik lauk með 4-1 sigri ÍH sem er þremur stigum frá toppliði KFS sem á leik til góða.

Vatnaliljur hafa unnið þrjá leiki í sumar og eru með tíu stig í sjötta sæti.

í D-riðli áttust svo við Árborg og Kría og lauk þeim leik með 1-2 sigri Kríu.

Afríka 3 - 2 Uppsveitir
1-0 Mohamad Samit(22')
1-1 Daniel Costel Boca(36')
2-1 Ionut Oprea(víti, 52')
3-1 Cedrick Mukya(90')
3-2 Guðmundur Karl Eiríksson(91')

GG 5 - 1 Léttir
1-0 Jón Kristján Harðarson(26')
2-0 Jón Kristján Harðarson(39')
3-0 Aron Ingi Sveinsson(sjálfsmark, 44')
4-0 Jón Gestur Ben Birgisson(45')
5-0 Brynjar Örn Ragnarsson(75')
5-1 Daníel Sæberg Hrólfsson(90')

Vatnaliljur 1 - 4 ÍH
0-1 Ingvar Ásbjörn Ingvarsson(6')
0-2 Pétur Hrafn Friðriksson(16')
0-3 Pétur Hrafn Friðriksson(40')
1-3 Kristþór Logi Sæmundsson(76')
1-4 Andri Þór Sólbergsson(78')

Árborg 1 - 2 Kría
0-1 Jóhannes Hilmarsson(víti, 62')
0-2 Jóhannes Hilmarsson(64')
1-2 Magnús Hilmar Viktorsson(víti, 86')

Athugasemdir
banner