Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 20:30
Victor Pálsson
Aubameyang gefur í skyn að hann sé ekki með tilboð frá Arsenal
Pierre-Emerick Aubameyang, leikmaður Arsenal, hefur gefið í skyn að hann sé ekki með samningstilboð frá félaginu til að krota undir.

Aubameyang á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum í London en hann er einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Háværar sögur hafa verið um að nýr samningur verði gerður við hann von bráðar.

Aubameyang var í beinni útsendingu á Instagram ásamt bróður sínum Willy og gaf þar í skyn að það væri ekkert fyrir hann til að krota undir.

„Það eru allir að sýna pennana og pappírana en ég er ekki með þessa pappíra," sagði Aubameyang.

Stuðningsmenn Arsenal voru mikið að biðja Aubameyang um að skrifa undir en hann er afar vinsæll í herbúðum liðsins.

Aubameyang kom til Arsenal frá Dortmund fyrir tveimur árum og hefur skorað 54 deildarmörk í 85 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner