Það var hiti í mönnum í Köln í kvöld þegar Sevilla og Inter Milan áttust við í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Sevilla fagnaði að lokum 3-2 sigri og tryggði sér sjötta Evrópudeildarmeistaratitilinn sem er met í keppninni.
Sky Italia greinir frá því í kvöld að þeir Antonio Conte og Ever Banega hafi rifist heiftarlega við hliðarlínuna á meðan leik stóð.
Atvikið átti sér stað í fyrri hálfleik en honum lauk með 2-2 jafntefli og var Conte lengi vel mjög æstur.
Banega er sagður hafa fengið nóg af öskri Conte og ákvað að gera grín að hári Ítalans og gaf í skyn að hann væri með hárkollu.
„Þetta er komið gott, þú verður að fara að þegja! Getum við séð hvort þetta sé hárkolla eða ekki?" á Banega að hafa sagt við Conte.
Conte hefur sjálfur farið í hárígræðslu og tók ekki vel í þessi ummæli Banega. „Ég sé þig eftir leikinn," á hann að hafa sagt við Banega á móti.
Sky Sport Italia and Gazzetta dello Sport claim Ever Banega mocked Antonio Conte's hair during touchline row. Inter coach said he'd 'see him after the game' Liveblog https://t.co/xT8hLzE4mh #SevillaInter #UEL #UELFinal
— footballitalia (@footballitalia) August 21, 2020
Athugasemdir

