Það verður hart barist í Lautinni í kvöld þegar Fylkir fær Stjörnuna í heimsókn í Pepsi Max-deild karla.
Fylkir er í sjötta sæti Pepsi Max-deildarinnar með 15 stig og Stjarnan í öðru sæti með 18 stig. Þess má þó geta að Stjarnan hefur spilað tveimur leikjum færra en Fylkir.
Fylkir tapaði síðasta leik sínum við ÍA, 3-2. Frá þeim leik eru gerðar þrjár breytingar á liðinu. Daði Ólafsson, Hákon Ingi Jónsson og Micahel Kedman koma inn fyrir Orra Svein Stefánsson, Arnór Gauta Ragnarsson og Arnór Borg Guðjohnsen. Kedman er að byrja sinn fyrsta leik fyrir félagið, en athygli vekur að enginn Arnór er í byrjunarliði Fylkis. Arnór Borg er á bekknum en Arnór Gauti Ragnar og Arnór Gauti Jóns eru ekki í hóp.
Halldór Orri Björnsson, hetja Stjörnunnar gegn FH, kemur inn í byrjunarliðið í kvöld ásamt Emil Atlasyni. Guðjón Baldvins og Sölvi Snær Guðbjargarson detta úr liðinu.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
7. Daði Ólafsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Hákon Ingi Jónsson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
16. Ólafur Ingi Skúlason
18. Nikulás Val Gunnarsson
19. Michael Kedman
20. Arnar Sveinn Geirsson
24. Djair Parfitt-Williams
Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
8. Halldór Orri Björnsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
20. Eyjólfur Héðinsson
22. Emil Atlason
29. Alex Þór Hauksson (f)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir




