Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   fös 21. ágúst 2020 18:17
Anton Freyr Jónsson
Vivaldivöllurinn
Byrjunarlið Gróttu og Breiðabliks: Mikkelsen snýr aftur
Thomas Mikkelsen.
Thomas Mikkelsen.
Mynd: Hulda Margrét
Byrjunarliðin eru klár í leik Gróttu og Breiðabliks sem mætast á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesinu. Flautað verður til leiks klukkan 19:15

Grótta situr fyrir leikinn í 11. sæti Pepsi Max-deildarinnar með sex stig eftir tíu leiki en liðið getur hoppað úr fallsæti með sigri í kvöld; í það minnsta tímabundið.

Breiðablik er í þriðja sæti deildarinnar með sautján stig en liðið hefur leikið tíu leiki í deildinni í sumar, unnið fimm, gert tvö jafntefli og tapað þremur.

Grótta gerir eina breytingu á liði sínu frá leiknum gegn Stjörnunni. Karl Friðleifur Gunnarsson sem skoraði mark Gróttu í þeim leik er einmitt lánsmaður frá Breiðabliki og má þess vegna ekki spila. Inn í hans stað kemur Axel Freyr Harðarson.

Hjá Breiðabliki snýr Thomas Mikkelsen aftur í byrjunarliðið eftir að hafa verið í leikbanni í 4-2 sigrinum gegn Víkingi. Damir Muminovic og Viktor Örn Margeirsson koma einnig inn í byrjunarliðið. Viktor Karl Einarsson, sem er að koma til baka úr meiðslum, byrjar á bekknum.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið Gróttu
1. Hákon Rafn Valdimarsson
2. Arnar Þór Helgason
5. Patrik Orri Pétursson
6. Sigurvin Reynisson (f)
7. Pétur Theódór Árnason
9. Axel Sigurðarson
16. Kristófer Melsted
19. Axel Freyr Harðarson
21. Óskar Jónsson
22. Ástbjörn Þórðarson
25. Valtýr Már Michaelsson

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
9. Thomas Mikkelsen
10. Brynjólfur Willumsson
11. Gísli Eyjólfsson
20. Kristinn Steindórsson
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner