Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar klukkan 19:00
Það er stórleikur á dagskrá í Evrópudeildinni í kvöld þar sem sjálfur úrslitaleikurinn fer fram í Köln í Þýskalandi.
Lið Inter Milan og Sevilla eigast við í úrslitaleiknum og má búast við fjörugum leik þar sem allt er undir fyrir bæði lið.
Inter vann lið Shakhtar Donetsk sannfærandi í undanúrslitunum og fagnaði að lokum 5-0 sigri. Sevilla fékk erfiðara verkefni gegn Manchester United en tókst að lokum að leggja þá ensku að velli, 2-1.
Bæði Christian Eriksen og Alexis Sanchez þurfa að sætta sig við bekkjarsetu hjá Inter en gætu þó komið við sögu.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
Sevilla: Bono, Navas, Kounde, D. Carlos, Reguilon, Fernando, Jordan, Banega, Ocampos, Suso, De Jong.
Inter Milan: Handanovic, Godin, De Vrij, Bastoni, D'ambrosio, Barella, Brozovic, Gagliardini, Young, Lukaku, Lautaro.
Athugasemdir



