Chelsea er nálægt því að tryggja sér bakvörðinn Ben Chilwell frá Leicester City að sögn virta blaðamannsins David Ornstein sem starfar fyrir The Athletic.
Chilwell hefur undanfarnar vikur verið orðaður við Chelsea en Leicester vill fá allt að 50 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Samkvæmt Athletic er Chelsea reiðubúið að greiða þá upphæð fyrir Chilwell sem er aðeins 23 ára gamall.
Chilwell hefur spilað með Leicester allan sinn feril fyrir utan eitt tímabil á láni hjá Huddersfield, tímabilið 2015-2016.
Stærri félög hafa tekið eftir vinstri bakverðinum sem hefur einnig spilað 11 landsleiki fyrir England.
Samkvæmt The Athletic horfir Frank Lampard, stjóri Chelsea, á Chilwell sem byrjunarliðsmann í bakverðinum fyrir næstu leiktíð en enska úrvalsdeildin fer af stað þann 12. september.
Chelsea er einnig sagt vera á höttunum eftir Thiago Sivla og Kai Havertz.
Athugasemdir



