Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 22:58
Victor Pálsson
Conte: Ekki viss um að ég verði þjálfari Inter á næstu leiktíð
Antonio Conte, stjóri Inter Milan, hefur staðfest það að hann gæti verið að kveðja félagið áður en næsta tímabil hefst.

Conte og hans lærisveinar mættu Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í kvöld og lauk leiknum með 3-2 sigri Sevilla.

Conte gagnrýndi fyrr í sumar stjórn Inter og kvartaði yfir því að fá enga vernd frá félaginu.

Eftir tapið í kvöld gaf Ítalinn það út að hann myndi funda um eigin framtíð í næstu viku.

„Við munum funda saman í næstu viku með félaginu og taka ákvörðun um mína framtíð. Ég er ekki viss um að ég verði þjálfari Inter á næstu leiktíð, við ákveðum það saman," sagði Conte.

Conte tók við Inter fyrir þessa leiktíð en liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir Juventus.

Hann vann áður deildina með Chelsea 2017 og gerði frábæra hluti með Juventus frá 2011 til 2014.

Athugasemdir
banner
banner
banner