Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   fös 21. ágúst 2020 21:31
Victor Pálsson
Einkunnir úr úrslitaleik Evrópudeildarinnar: De Jong bestur
Sevilla er Evrópudeildarmeistari árið 2020 eftir viðureign við Inter Milan í stórskemmtilegum úrslitaleik í kvöld. Leikið var fyrir luktum dyrum í Köln í Þýskalandi.

Alls voru fimm mörk skoruð í leiknum sem endaði með 3-2 sigri Sevilla. Sjálfsmark frá Romelu Lukaku tryggði þeim spænsku sigurinn.

Lukaku komst því tvisvar á blað en hann sá einnig um að skora fyrsta mark Inter af vítapunktinum.

Luuk de Jong var besti maður vallarins en hann skoraði tvö skallamörk fyrir Sevilla í fyrri hálfleik og sneri leiknum þeim í vil.

Sevilla var að vinna keppnina í sjötta sinn í sögunni sem er met.

Hér fyrir neðan má sjá einkunnirnar úr leiknum en Independent tók saman.

Sevilla:
Yassine Bounou 7
Jesus Navas 8
Jules Kounde 7
Diego Carlos 6
Sergio Reguilon 7
Ever Banega 6
Fernando 7
Joan Jordan 6
Suso 7
Luuk de Jong 9
Lucas Ocampos 8

Inter Milan:
Samir Handanovic 6
Diego Godin 7
Stefan de Vrij 6
Danilo D'Ambrosio
Ashley Young 7
Alessandro Bastoni 6
Marcelo Brozovic 7
Nicolo Barella 8
Roberto Gagliardini 6
Romelu Lukaku 7
Lautaro Martinez 6

Athugasemdir
banner
banner