Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 21. ágúst 2020 23:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emir Dokara segir Gauja Þórðar hafa rekið sig
Lengjudeildin
Emir í leik með Ólsurum gegn Keflavík í vikunni.
Emir í leik með Ólsurum gegn Keflavík í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emir Dokara birtir í kvöld færslu á stuðningsmannasíðu Víkings Ólafsvíkur þar sem hann kveðst hafa verið rekinn frá félaginu.

Hann segir að Guðjón Þórðarson, nýr þjálfari liðsins, hafi rekið sig án þess að gefa upp ástæðu fyrir því.

Emir hefur spilað með Víkingi síðan 2011 og er reynslumesti maðurinn í liðinu. Hann hefur gegnt hlutverki fyrirliða í Ólafsvík en verður ekki áfram í félaginu.

Emir verður 34 ára í september. Hann hefur spilað níu leiki í deild og bikar í sumar og skorað eitt mark. Hann spilaði allan leikinn í 6-1 tapi gegn Keflavík fyrr í vikunni.

Víkingur Ólafsvík er í tíunda sæti Lengjudeildarinnar eins og er.

Emir endaði færsluna á því að þakka stuðningsmönnum Víkings Ó. fyrir síðustu árin.

Emir eyddi færslunni síðar í kvöld. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar.
Slapp
banner
banner
banner