Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 16:44
Victor Pálsson
Fyrsti leikmaðurinn sem Klopp keypti má fara frá Liverpool
Liverpool er reiðubúið að selja miðjumanninn Marko Grujic en hann hefur undanfarin tvö ár spilað með Hertha Berlin í Þýskalandi.

Grujic var fyrsti leikmaðurinn sem Jurgen Klopp keypti til Liverpool en hann samdi við félagið þann 6. janúar 2016.

Grujic kostaði Liverpool 5,1 milljónir punda en hann var þá á mála hjá Red Star Belgrade í serbnensku úrvalsdeildinni.

Samkvæmt miðlinum Goal þá vill Liverpool nú selja leikmanninn endanlega fyrir um 20 milljónir punda.

Hertha er líklegasti áfangastaður miðjumannsins en hann hefur spilað vel þar í láni síðustu tvö tímabil.

Borussia Monchengladbach og Eintracht Frankfurt eru þó einnig sögð vera að skoða leikmanninn.

Athugasemdir
banner