Núna er hafinn leikur Fylkis og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla á Würth vellinum í Árbæ.
Það eru ekki margir áhorfendur í stúkunni en þeir eru nokkrir. Nú eru í gangi 100 manna samkomutakmarkanir á Íslandi en þær gilda þó ekki í íslenska boltanum þar sem áhorfendur eru bannaðir. Þó má hvort félag sem spilar í hverjum leik hafa tíu áhorfendur inn á vellinum en þar gæti verið um að ræða stjórnarmenn, leikmenn utan hóps eða aðra aðila sem félög telja að þurfi að sjá umræddan leik.
Erik Hamren, landsliðsþjálfari karla, fær að mæta á leikinn í Árbænum í kvöld en hann er ásamt Sigurði Sveini Þórðarsyni (Sigga dúllu), starfsmanni KSÍ og Stjörnumanni, í stúkunni.
Silfurskeiðin, stuðningsmannahópur Stjörnunnar, er sem fyrr fyrir utan völlinn að hvetja sína menn áfram. Það er ekkert sem bannar stuðning fyrir utan völlinn svo lengi sem tveggja metra reglan er virt.
KSÍ vonast til þess að hægt verði að gefa grænt ljós á áhorfendur í næstu viku.
Hægt er að nálgast beina textalýsingu frá leiknum hérna
Athugasemdir



