Harry Kane hefur ekki getað hafið undirbúningstímabilið með Tottenham en hann er í sóttkví eftir að hafa komið heim frá Bahamaeyjum þar sem hann var í fríi.
Hann var á eyjunum þegar þær bættust á lista Bretlands yfir rauð lönd og þurfa allir sem þaðan koma að fara í tveggja vikna sóttkví.
Kane er því í sóttkví á heimili sínu ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum,

Tottenham hefur hafið æfingar fyrir komandi tímabil en Kane ætti að mæta á æfingasvæðið í næstu viku.
Þessi 27 ára sóknarmaður verður klár fyrir fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 12. september þegar Tottenham mætir Everton.
Þá verður hann væntanlega með enska landsliðinu gegn Íslandi þann 5. september.
Athugasemdir