Guðmundur Tyrfingsson gekk á mánudag í raðir ÍA frá uppeldisfélagi sínu Selfossi. Guðmundur er fæddur árið 2003 og lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki sumarið 2018.
Í sumar hefur Gummi skorað sex mörk í tólf leikjum. Hann kom inn á sem varamaður í bikaleik ÍA og Vals á þriðjudag og átti þátt í eina marki Skagamanna þegar Valur sló þá úr leik.
Í sumar hefur Gummi skorað sex mörk í tólf leikjum. Hann kom inn á sem varamaður í bikaleik ÍA og Vals á þriðjudag og átti þátt í eina marki Skagamanna þegar Valur sló þá úr leik.
Áhugi var á Gumma úr fleiri áttum, það voru ekki einungis Skagamenn sem fylgdust með leikmanninum efnilega.
„Skaginn sótti undrabarnið Guðmund Tyrfingsson frá Selfossi í vikunni. Það er leikmaður sem vert er að fylgjast með. Ég veit að hann hafði úr u.þ.b. sex tilboðum erlendis að velja en hann ákvað að spila lengur hér heima," sagði Ingimar Helgi Finnsson, annar af þáttarstjórnendum hlaðvarpsþáttarins Fantasy Gandalf í þætti gærdagsins.
Áhugi en engin formleg tilboð
Fótbolti.net hafði samband við Guðmund og spurði hann hvort að hann vissi af tilboðum erlendis frá.
„Það var áhugi frá erlendum liðum en engin formleg tilboð. ÍA kom með tilboð sem heillaði mikið og sá ég tækifæri á að bæta mig hjá þeim þannig ég ákvað að taka skrefið til þeirra og gæti ég ekki verið ánægðari og spenntari með það skref," sagði Guðmundur.
Næsti leikur ÍA er gegn KA á útivelli í Pepsi Max-deild karla. Sá leikur fer fram á morgun, laugardag, og hefst hann klukkan 14:00.
Sjá einnig:
Gummi Tyrfings: Heiður að finna áhuga og traust frá ÍA
Gummi Tyrfings: Gæti tekið við rekstrinum eftir ferilinn (24. maí '20)
Athugasemdir




