Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 18:33
Victor Pálsson
Juventus mun rifta samningum Khedira og Higuain
Þeir Sami Khedira og Gonzalo Higuain munu ekki spila með liði Juventus á næstu leiktíð að sögn blaðamannsins virta Fabrizio Romano.

Nú eru í gangi breytingar hjá Juventus sem rak nýlega Maurizio Sarri og tók Andrea Pirlo við keflinu.

Pirlo er fyrrum leikmaður Juventus en hann spilaði með liðinu frá 2011 til 2015 áður en hann hélt til Bandaríkjanna og endaði ferilinn með New York City.

Higuain og Khedira eiga báðir eitt ár eftir af samningnum en Juventus mun rifta honum og borga upp þá mánuði sem eru eftir.

Juventus er byrjað að ræða við leikmennina um sarfslok og verða þeir frjálsir ferða sinna fyrir næstu leiktíð.

Hinn 32 ára gamli Higuain hefur spilað með Juventus síðan 2016 en hefur tvisvar verið sendur á lán til AC Milan og Chelsea. Hann var keyptur frá Napoli fyrir 90 milljónir evra en stóðst ekki væntingar hjá Ítalíumeisturunum.

Khedira kom til Juventus frá Real Madrid árið 2015 og hefur tekist að skora 21 deildarmark í 99 leikjum. Hann er 33 ára gamall í dag.
Athugasemdir
banner