Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   fös 21. ágúst 2020 16:07
Elvar Geir Magnússon
Katar: Heimir og Aron enduðu í sjöunda sæti
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Al Arabi lék í dag lokaleik sinn í úrvalsdeildinni í Katar. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið en markalaust jafntefli gegn Qatar SC var niðurstaðan í lokaleiknum.

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn á miðjunni hjá Al Arabi.

Al Arabi endar í sjöunda sæti deildarinnar, einu sæti neðar en í fyrra.

Liðið endaði með 26 stig og markatöluna 28-28. Sóknarleikurinn hefur verið ákveðið vandamál hjá liðinu. Al Arabi vann 6 af 22 leikjum, gerði 8 jafntefli og tapaði 8 leikjum.

Heimir er samningsbundinn út næsta tímabil.

Tímabilinu er ekki lokið hjá Al Arabi en liðið á bikarleik gegn Al Rayyan eftir átta daga.
Athugasemdir
banner
banner