Evrópudeildarkóngarnir Sevilla héldu áfram sigurför sinni í keppninni í kvöld með því að leggja ítalska félagið Inter að velli í fjörugum úrslitaleik.
Úrslit kvöldsins:
Evrópudeildin: Sevilla meistari í sjötta sinn eftir sigur á Inter
Úrslit kvöldsins:
Evrópudeildin: Sevilla meistari í sjötta sinn eftir sigur á Inter
Jesus Navas lyfti titlinum 14 árum eftir að hann vann hann fyrst með Sevilla, árið 2006.
Kvöldið í kvöld var tilfinningaþrungið fyrir marga leikmenn Sevilla og þá sérstaklega Navas. Hann var góður vinur bæði Antonio Puerta og Jose Antonio Reyes, fyrrum leikmanna Sevilla. Puerta lést eftir að hafa misst meðvitund í leik með Sevilla árið 2007 og Reyes lést í bílslysi fyrir rúmu ári.
Reyes vann Evrópudeildina með Sevilla þrisvar sinnum og Puerta tvisvar sinnum.
Leikmenn Sevilla minntust þessara tveggja leikmanna með því að klæðast bolum eftir leikinn. Sevilla er sigursælasta félag í sögu Evrópudeildarinnar með sex titla.
Sevilla pay tribute to club legends Jose Antonio Reyes and Antonio Puerta after winning the Europa League 🙏 pic.twitter.com/vtPUQzHvDE
— B/R Football (@brfootball) August 21, 2020
Athugasemdir



