Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: RÚV 
Leikmenn úr Val og Breiðabliki í sóttkví
Kvenaboltinn
Breiðablik er á toppi Pepsi Max-deildarinnar með fullt hús stiga.
Breiðablik er á toppi Pepsi Max-deildarinnar með fullt hús stiga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikmenn úr kvennaliði Vals og einn leikmaður úr kvennaliði Breiðabliks eru komnar í sóttkví. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Það að þessir leikmenn séu komnir í sóttkví er sagt tengjast smiti sem varð hjá kvennaliði KR.

Kórónuveirusmit greindist hjá kvennaliði KR í gær og er Vesturbæjarliðið í sóttkví í þriðja sinn í sumar. KR fór í sóttkví eftir leik gegn Breiðabliki í júní þar sem smitaður leikmaður spilaði með Blikum. Á dögunum fór liðið einnig í sóttkví eftir að smit kom upp hjá aðila tengdum liðinu.

Næstu leikjum KR, þar á meðal leik gegn Breiðabliki, hefur verið frestað, en leikjum Blika og Vals verður ekki frestað. KSÍ hefur sagt að minnsta kosti fimm leikmenn verði að vera í sóttkví til að fá frestun.
Athugasemdir
banner
banner