Haukar ætla sér að vera með í baráttunni um að fara upp í Pepsi Max-deild kvenna.
Haukastúlkur unnu 1-0 heimasigur gegn Fjölni í kvöld. Það var Vienna Behnke sem skoraði eina mark leiksins þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.
Haukar eru núna í þriðja sæti með 17 stig, jafnmörg stig og Grótta sem á leik til góða. Tindastóll er með tveimur stigum meira og Keflavík þremur stigum meira, en þessi tvö lið eiga einnig leik til góða.
Fjölnir er í næst neðsta sæti með fjögur stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Í hinum leik kvöldsins á þessu föstudagskvöldi vann Afturelding 1-0 útisigur gegn Víkingi Reykjavík. Afturelding er í fimmta sæti með 12 stig og Víkingur í sjöunda sæti með átta stig.
Haukar 1 - 0 Fjölnir
1-0 Vienna Behnke ('75)
Víkingur R. 0 - 1 Afturelding
0-1 Aldís Ólafsdóttir ('87)
Athugasemdir



