Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 10:39
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Sevilla og Inter
Sevilla og Inter mætast í úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld klukkan 19:00 en leikið verður í Köln.

Antonio Conte mun líklega stilla upp sama byrjunarliði Inter og náði að slá út Bayer Leverkusen og shaktar Donetsk.

Diego Godin verður því áfram í vörninni með Stefan de Vrij og Alessandro Bastoni. Danilo D’Ambrosio og Ashley Young voru vængbakverðir.

Alexis Sanchez er kominn til baka eftir meiðsli aftan í læri en verður við hlið Christian Eriksen á bekknum.

Lautaro Martínez og Romelu Lukaku verða í fremstu víglínu.

Hjá Sevilla er markahæsti leikmaður liðsins, Lucas Ocampos, tæpur en Argentínumaðurinn ætti að byrja í sóknarlínunni með Suso og Youssef En-Nesyri.

Ever Banega, fyrrum leikmaður Inter, ætti að vera á miðjunni ásamt Fernando og Joan Jordan.

Líklegt byrjunarlið Sevilla: Bounou; Navas, Kounde, Diego Carlos, Reguilon; Banega, Fernando, Jordan; Suso, En-Nesyri, Ocampos

Líklegt byrjunarlið Inter: Handanovic; Godin, De Vrij, Bastoni; D’Ambrosio, Barella, Brozovic, Gagliardini, Young; Lukaku, Lautaro
Athugasemdir
banner
banner