Julen Lopetegui, þjálfari Sevilla, gat svo sannarlega brosað í kvöld eftir 3-2 sigur liðsins á Inter Milan í úrslitum Evrópudeildarinnar.
Sevilla spilaði skemmtilegan bolta á köflum í kvöld og skoraði Hollendingurinn Luuk de Jong tvö fyrir liðið í fyrri hálfleik.
Inter komst yfir eftir aðeins fimm mínútur en Sevilla fékk á sig enn eina vítaspyrnuna sem Romelu Lukaku skoraði úr.
Liðinu tókst hins vegar að snúa þeirri stöðu við og hrósaði Lopetegui sínum mönnum eftir sigurinn.
„Þetta er mjög sérstakt. Það er alltaf sérstakt að vinna bikar. Fyrir okkur, mig og stuðningsmennina er þetta mjög sérstakt,"sagði Lopetegui.
„Luuk de Jong er frábær leikmaður, hann vann fyrir þessu augnabliki og var tilbúinn þegar þess þurfti."
„Við höfum fengið á okkur þrjú víti á fyrstu fimm mínútunum í síðustu þremur leikjum en okkar lið gefst aldrei upp."
Athugasemdir




