Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   fös 21. ágúst 2020 19:19
Victor Pálsson
Lukaku jafnaði afrek brasilíska Ronaldo
Nú er í gangi úrslitaleikur Evrópudeildarinnar en lið Sevilla og Inter Milan eigast við í Köln í Þýskalandi.

Leikurinn hefur farið mjög skemmtilega af stað og er staðan 1-1 þegar 14 mínútur eru búnar af fyrri hálfleik.

Romelu Lukaku hefur spilað glimrandi vel fyrir Inter á tímabilinu og kom liðinu yfir úr vítaspyrnu á 5. mínútu áður en Luuk de Jong jafnaði fyrir Sevilla.

Lukaku var að skora sitt 34. mark fyrir Inter á tímabilinu en hann kom frá Manchester United fyrir leiktíðina.

Lukaku er fyrsti leikmaðurinn til að skora 34 mörk á sínu fyrsta tímabili fyrir Inter síðan Brassinn Ronaldo gerði það tímabilið 1997-1998.

Ronaldo skoraði þá 34 mörk í 47 leikjum fyrir Inter en Lukaku hefur gert það í 51 leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner