Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   fös 21. ágúst 2020 23:58
Victor Pálsson
Lukaku neitaði að taka við verðlaununum
Romelu Lukaku, leikmaður Inter Milan, vildi ekki taka við silfur verðlaunapeningnum eftir leik við Sevilla í úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Lukaku spilaði stórt hlutverk í leik kvöldsins en hann skoraði fyrsta mark leiksins til að koma Inter yfir.

Í seinni hálfleik skoraði hann svo sjálfsmark sem reyndist sigurmark leiksins og vann Sevilla að lokum 3-2 sigur.

Allir leikmenn Inter tóku við verðlaununum eftir leik, fyrir utan Lukaku sem lét ekki sjá sig.

Eins og gefur að skilja var Lukaku miður sín eftir lokaflautið en hann átti annars góðan leik í framlínu liðsins.

Belginn skoraði 34 mörk fyrir Inter á leiktíðinni en hann kom frá Manchester United í fyrra.



Athugasemdir
banner
banner