Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, er mættur í dómssal í Grikklandi eftir að hafa verið handtekinn á eyjunni Mykonos.
Maguire var meðl þriggja manna sem voru handteknir eftir að lögreglan var kölluð á bar þar sem Maguire og félagar voru í áflogum við aðra ferðamenn frá Englandi.
Brutust þá út áflog við lögreglumenn. Að minnsta kosti tveir lögreglumenn urðu fyrir hnefahöggum og spörkum.

Mennirnir þrír hafa verið ákærðir og eru mættir í dómssal á eyjunni Spyros eftir að hafa gist fangageymslur.
Maguire mætti í dómsalinn í stuttbuxum, bol og með sóttvarnargrímu.
Manchester United hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið segist meðvitað um atvikið og hafi verið í sambandi við varnarmanninn. Hann muni sýna lögreglunni fullan samstarfsvilja í málaferlunum.
„Félagið tjáir sig ekki frekar um málið að svo stöddu," segir að lokum í yfirlýsingunni.
Athugasemdir