Ensku slúðurblöðin eru mætt með allt það helsta í kjaftasögunum. Njótið!
Ronald Koeman, nýráðinn þjálfari Barcelona, vill fá Gini Wijnaldum (29) miðjumann Liverpool til félagsins. (Algemeeen Dagblad)
Gabriel Magalhaes (22), varnarmaður Lille, hefur beðið með að ákveða framtíð sína eftir að Manchester United sýndi honum áhuga. Arsenal er þó ennþá líklegasti áfangastaðurinn. (Telegraph)
Manchester United hefur hætt við að fá Douglas Costa (29) á láni frá Juventus. Þess í stað ætlar félagið að fá David Brooks (23) frá Bournemouth. (Manchester Evening News)
Manchester United hefur fengið þau skilaboð að verðmiðinn á Brooks sé 40 milljónir punda. (Sun)
Tottenham ætlar að reyna að fá Ainsley Maitland-Niles (22) frá Arsenal. (Mail)
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er að skoða hvort félagið eigi að kaupa miðjumanninn Thiago Alcantara (29) frá Bayern Munchen á 30 milljónir punda. Klopp þarf að selja aðra miðjumenn ef hann ætlar að kaupa Thiago. (Independent)
PSG er að skoða Diogo Dalot (21) bakvörð Manchester United. (O Jogo)
Brighton ætlar ekki að samþykkja þriðja tilboðið frá Leeds í Ben White. (Argus)
Aston Villa ætlar að gera 18 milljóna punda tilboð í Ollie Watkins (24) framherja Brentford. Brentford vill fá 25 milljónir punda fyrir Watkins. (Mail)
Brasilíski miðjumaðurinn Felipe Anderson (27) er að íhuga að fara frá West Ham. (Sun)
Chris Smalling (30) varnarmaður Manchester United vill ganga til liðs við Roma á ný en hann var á láni hjá félaginu á síðasta tímabili. (Mirror)
Troy Deeney (32) vill vera áfram hjá Watford þrátt fyrir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni. (Talksport)
Dwight Gayle (29) ætlar að klára samning sinn hjá Newcastle þrátt fyrir áhuga frá öðrum félögum. (Telegraph)
Athugasemdir



