Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 14:00
Elvar Geir Magnússon
Minamino leiður yfir því að hafa ekki náð marki eða stoðsendingu
Takumi Minamino, leikmaður Liverpool, segist vera leiður yfir því að hafa ekki haft meiri áhrif á sínu fyrsta tímabili hjá enska félaginu.

Japanski framherjinn náði hvorki að skora né leggja upp í þeim tíu leikjum sem hann spilaði. Honum gekk brösuglega að aðlagast lífinu í enska boltanum.

Hann var mest notaður sem varamaður.

„Við náðum að vinna deildina og ég er svo ánægður með að hafa upplifað það," sagði Minamino í viðtali í heimalandi sínu.

„En ég hefði viljað skora eða leggja upp. Ég legg mikla áherslu á að skila því og mér finnst leiðinlegt að hafa ekki náð að skila því."

Búast má við því að þessi 25 ára leikmaður verði í stærra hlutverki á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner